Gleðilegt ár og takk
fyrir það gamla, ákvað nú loksins að koma með smá fréttir um mann,
hef nú ekki bloggað í ca 2
mánuði...
Allt
gott bara að frétta af
mér
Alltaf jafn
fínt á leikskólanum búin að vinna þar í ca
5 mánuði, úff tíminn líður sko hratt, finnst ég ný
byrjuð
15-18 NÓV
- Mót í Kotinu ( Föður Hjarta
Guðs)
Mótið í Kotinu var mjög
fínt, alltaf svo gott að komst “heim” í Kotið, enda líður manni
alltaf svo vel þar
búin að koma þangað síðan ég fæddist
...frelsaðist þar þegar ég var 7 ára gömul á barnamóti og var það
einstök upplifum fyrir sjö ára barn, man alltaf eftir þessu
móti, fékk nú líka tungutal
þá.
Ræðumenn mótsins
voru hjón frá Kanada sem ferðast um heiminn og vitna og
predika orð Guðs, þau komu frá mjög ólíku uppeldi, en höfðu
samt bæði upplifað höfnum frá föður sínum og töluðu mikið um
það og vitnisburð sinn ( Yfirskrift mótsins var “föður hjarta
Guðs” að horfa á Guð sem pabba
sinn)
Á mótinu var
margt sem ég upplifði sem ég hef hvorki séð né fengið að
upplifa áður, , en ég hef fengið tímabil eins og örugglega
margir hafa fengið að efast um að Guð /
Jesú séu til og það
varð meira eftir að ég hætti að mætta á samkomur, biðja og
lesa og fór að sækjast meira í djammið og það
allt!
Föstudagurinn 30
nóv:
Vorum fyrr um
daginn að skreyta og gera allt fínt uppí leikskóla og svo
hittumst við svo öll um kvöldið og þá var jólamatur, borðum
góðan mat og nokkrir voru með skemmtiatriði, þema kvöldsins
var rautt.
Jólaglögg Póstsins var 1
des.
Og var það haldið
á Enska Barnum eða ( English Pub) mjög gaman að hitta allt
póstliðið aftur, fór með Fjólu og Arndísi og var það nú svaka
stuð hjá okkur, hitti nú einnig gömlu deildina mína....svo
var kíkt á Hressó með liðinu...
Svo í desember
var ég að hjálpa Jóhönnu systir með krakkana , Óli var í
vinnuferð og á meðan var ég nú hjá þeim..ekkert smá nice að
vera með krökkunum enda sakna maður nú þess að vera ekki eins
mikið með þeim....enda var þetta mjög skemmtilegur og góður
tími
Jólin:
Aðfangadagur vorum við ég, ma og pa hjá
Jóhönnu og co, amma Hanna og afi Steini voru með okkur og var
það mjög fínt, svo komu Ósk, Óli og Steini til okkar eftir að
pakkarnir voru opnaðir....
Jóladag: Fór í jólaboð til ömmu Hönnu og
afa Steina og var þar öll fjölskyldan, alltaf svo gaman að
hittast svona öll saman, enda er það nú fastur liður á
jóladag að hittast öll...
Gamlársdagur: Jóhanna og co komu til
okkar, fór svo eftir miðnætti niður Fíló,
á grímuball, svaka stuð, neðri salurinn flott skreyttur og
góð stemming.
Var svo í mjög góðu
jólafríi, næstum því 2 vikur, vann hálfan dag á milli jóla og nýárs
og byrjaði svo að vinna 3 jan.....eftir gott
frí
NÝJAR
MYNDIR SVO Á
LEIÐINNI,
SLATTI AF MYNDUM EFTIR AÐ KOMA
INNSÍÐAN Í
NÓV